« -GLEÐILEGT NÝTT ÁR .::2003::. | Heim | -alltaf gaman að kíkja inná katrínu, fann þetta þa… »

-ég fór í matarboð til auðar og hróa í gærkveldi o…

Árni | föstudagur 3.janúar, 2003

-ég fór í matarboð til auðar og hróa í gærkveldi og við ákváðum að horfa á temptation island þáttinn í sem átti að vera e-ð uncut og svoleiðis, en vá hvað þetta var lélegur þáttur… ég meina trailerinn var að sýna gellur að synda naktar og að bera á sig áburð naktar og svoleiðis dót, en svo þegar í þáttinn var komið var bara ekkert sýnnt, nema það sem hafði verið sýnt í þáttunum sjálfum, nema jú nokkrir gaurar að sýna sprellann sinn, sem var nóta bene blurað… hversu mikið frod var það!!!!!

-en á gleðilegri nótunum þá var ólafur stefánsson valinn íþróttamaður ársins í gær, loksins, og var kominn tími á að hann fengi þessi verðlaun efir að hafa verið einn besti íþróttamaður okkar í mörg ár núna… svo kom upp nokkuð spaugilegt atvik við afhendinguna í gær (mér fannst það allavegna spaugilegt) þegar gaurinn sem var að afhenda öll verðlaunin var að afhenda bróðir hans ólafs viðurkenningu fyrir að hafa verið meðal þeirra 10 efstu… jón arnór gat ekki mætt þannig að pabbi hans kom að taka við viðurkenningunni… ekki vildi betur til en að gaurinn fór að kalla hann eggert stefánsson… það þarf nú ekki mjög gáfaðan mann til að fatta það að pabbi tveggja stráka sem eru stefánssynir heiti væntanlega stefán… honum tókst nú á endanum að leiðrétta sig, en ekki fyrr en hann var búinn að kalla kallinn eggert nokkrum sinnum… kanski er ég með svona mikinn aulahúmor, en mér fannst þetta allavegna mjög spaugilegt…

-afhverju er fólk að nýta sér frægð barna sinna til að koma sér og skoðunum sínum á framfæri… ég skil ekki svona fólk….

Fl: Annað |

Álit