« Gleðileg Jól :) | Heim | What me worry??? »
2006 varð 2007…
Árni | þriðjudagur 2.janúar, 2007
Jæja… enn eitt árið komið í hús…
Það hefur vissulega margt gerst á árinu… sumt merkilegt… en flest ekki…
2006 hjá mér í hnotskurn:
- kláraði MCSA námskeið
- vann sem launafulltrúi í Sunnuhlíð
- hélt upp á 7 ára afmæli mitt og Drífu, 4 ára afmæli Perlu Rósar og 1 árs afmæli Urðar Óskar… og það allt í sömu vikunni í Maí ![]()
- ég og Drífa giftum okkur 18.júní ![]()
- ég hætt í Sunnuhlíð og hóf störf hjá RÚV í byrjun júlí
- ég varð föðurbróðir ![]()
- komst að því að við Drífa munum eignast okkar 3.ja barn á næsta ári…
Það gerðist ábyggilega fullt fleira… en annaðhvort man ég það ekki… eða finnst það ekki nógu merkilegt til að minnast á það… (það fyrra er líklegra miðað við gullfiskaminnið mitt
)
Allavegna… Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna… hvort sem þið lesið þetta blog eður ei…
Fl: Dagbók |
laugardagur 6.janúar, 2007 klukkan 23:35
Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna sömuleiðis. Já ég mundi segja að þetta sé nokkuð viðburðaríkt ár hjá þér vinur minn og litlar líkur á að næstu ár og áratugir verði minna merkilegir.
Kær kveðja úr 16 stiga hita og sól frá Av D
Hrói, Auður og Martin