« What me worry??? | Heim | Smá “flashback”… »

Mannanöfn…

Árni | fimmtudagur 18.janúar, 2007

Sum nöfn skil ég einfaldlega ekki…….
Við Drífa höfum haft það að leiðarljósi þegar við höfum verið að finna nöfn á stelpurnar okkar að gefa þeim nöfn sem þær geta borið stoltar og án þess að rekast á nöfnu sína á hverju götuhorni… en sumum finnst það greinilega ekki nóg að nöfnin séu fágæt, heldur þurfa þau að hljóma nógu furðulega líka…

Steingrímur Sævarr fékk lista sendan frá lesanda sínum yfir ný mannanöfn á Íslandi sem er nokkuð sláandi…
Samkvæmt þessum lista er t.d. hægt að heita:
Vísa Skuld………………. HA!!!
Dúfa Snót???
Bóthildur Brák???
Fengur Fífill………………
Ljótur Ljósálfur!!!!!!!!!!!! greyjið drengurinn…….
Kópur Kristall….. úff…

Ég held að Perla Rós og Urður Ósk geti verið sáttar við það að við Drífa séum ekki svona mikil kvikindi…

Það er eins gott að krakkar framtíðarinnar verði með bein í nefinu ef þau eiga að geta þolað það einelti sem þau verða fyrir vegna nafna sinna… LJÓTUR LJÓSÁLFUR!!!! áiii…

Fl: Annað |

Álit