« Mannanöfn… | Heim | HelpDesk… »

Smá “flashback”…

Árni | fimmtudagur 18.janúar, 2007

Var að fletta einhverjum síðum á netinu og rakst á eina sem vakti mikla kátínu í litla hausnum mínum (reyndar heldur Perla Rós því fram að hún sé með stóran haus eins og ég……..)

Hver man ekki eftir Commodore 64??? eða Nintendo??? og þá sérstaklega NES (Nintendo Entertainment System) :)

Ég, Hjalti og Gaui eyddum ófáum stundunum í að bíða eftir því að Commodore 64 vélin hans Hjalta ræsti sig upp á okkar yngstu árum…
Settum spóluna með Winter Olympics í og slóum inn “Load” og fórum svo og fengum okkur kökur og mjólk :)

Ekki má gleyma Nintendo vélinni sem við fluttum með okkur heim frá kanaríkjunum og vorum með þeim fyrstu sem sáust á þessum slóðum…

good times :D

Fl: Dagbók |

Álit