« It´s a boy!!! | Heim | Vísindakirkjan……… »

Hvað segist svo???

Árni | þriðjudagur 27.febrúar, 2007

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?
2. Hve gamall/gömul ertu
3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?
4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?
5. Dreymir þig á nóttunni?
6. Hefuru séð lík?
7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?
8. Ertu að fíla Gogga Bush?
Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.
9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?
10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera?
11. Treystiru lögreglunni?
12. Hlustaru á kántrí?
13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?
14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?
15. Myndiru deita mig?
16. Í hverju sefuru?
17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?
18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?
19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?
20. Hvað finnst þér best um mig?
21. Er ég hot?
22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?
23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?
24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.
25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?

Fl: Annað |

5 álit á “Hvað segist svo???”

  1. Rannveig Sagði:
    þriðjudagur 27.febrúar, 2007 klukkan 11:21

    Þar sem ég ætla að stela þessu af síðunni þinni.. þá verð ég víst að svara hjá þér er það ekki :)
    1. Já ég held ég hafi nú gert það, pottþétt þegar ég spilaði handbolta og ábyggilega alveg óvart líka einhvern tímann :)
    2. ég er nýorðin 28 ára og er stolt af því!
    3. ég er í sambúð sem hefur staðið í 6 ár
    4. Ég geri bæði, fer eftir því hvað ég er að borða.
    5. Úff já mig dreymir allskonar vitleysu og stundum dreymir mig fyrir einhverju sem gerist í raun og veru!
    6. Já
    7. Nei
    8. NEI
    9. Lífið er til að lifa því og hafa gaman.. en það er ekkert að smá skipulagningu.
    10. Ég held það mættu nú bara allir vita það.. ég hugsa að ég myndi skella mér með þér á gott ball eða góða tónleika og dansa svolítið
    11. Já og nei.. held það leynist svartir sauðir alls staðar.
    12. hahaha já ég held ég hafi nú gert það, en það er nú ekki reglulega né í neinu uppáhaldi.
    13. Ætli það sé ekki þegar við höfum skemmt okkur saman eða þegar þú kenndir mér að meta Smashing Pumpkins hérna um árið :)
    14. Minnka stressið
    15. Nei þú átt konu og 2 börn og þriðja á leiðinni.. það er ekki vænlegt til góðrar niðurstöðu ;) hehehe
    16. Náttfötum - er svo helv.kalt hérna á stúdentagörðunum! sef meira að segja með hitadýnu!
    17. oj nei! og vil helst ekki vita af því að aðrir geri það!
    18. ummm þetta er ekki góð spurning fyrir mig, verðandi lögmann og svona.. no comment!
    19. Ég myndi eyða öllum þeim tíma sem ég gæti með þér, segja allt sem ég vildi segja við þig og gera allt sem þig langaði til að gera.
    20. Þú ert ofurhress.. alltaf brosandi :)
    21. svona spurningar eru ekki ætlaðar fyrir vini ;)
    22. Rauður
    23. Úff þetta er erfitt! afi og amma klárlega, get ekki valið á milli.
    24. ég nota skó nr. 40, pointless! nema þau ætlir að kaupa á mig skó einhvern tímann hehehe
    25. Þegar búin að því ;)

  2. Karl Jóhann Sagði:
    þriðjudagur 27.febrúar, 2007 klukkan 13:37

    1. Já, en ég efast um að ég hafi meitt nokkurn með því…
    2. 27
    3. Eilíflega frátekinn
    4. Fer eftir tegund matar, en áhöld eru vinsæl
    5. Öll spendýr dreyma, ég man m.a.s. eftir mínum draumum stundum
    6. Já, því miður
    7. Oft og mörgum sinnum, ég er afar bitur manneskja
    8. Já, gera það ekki allir?
    9. Allt er best í hófi, sérstaklega hófið… nei, tek fáu mjög alvarlega
    10. Uhm… veit ekki, hefurðu séð Boondock Saints? Fullt af leiðinlegu fólki til ;)
    11. Hehehehe… njah, ekkert svo, fólk er nú misjafnlega breyskt
    12. Nei
    13. Of væmin spurning fyrir minn smekk
    14. Ég er óþarflega neikvæður á stundum
    15. Nei, ert ekki mín týpa.
    16. Viltu í alvörunni vita það?
    17. Ekki svo ég muni, en örugglega, hef samt ekki farið í sund í áratug eða svo
    18. Auðvitað, við erum nú í þessu saman
    19. Ég neita að svara þessu
    20. Þú ert afar vel innrættur og hugulsamur, svona innst inni.
    21. or not?
    22. Rauður (eru þessar spurningar ætlaðar stelpum?)
    23. Creepy…
    24. Ég þoli ekki Flash en átta mig þó á gagnsemi þess og möguleikum
    25. Nei

  3. Einar Sagði:
    þriðjudagur 27.febrúar, 2007 klukkan 22:44

    1. Yeep
    2. 27
    3. Einhleypur
    4. Tólum
    5. Já, Dreymdi hljómsveitina Hjálma í nótt og vitir menn í dag er greint frá því að þeir koma saman aftur.
    6. nei.
    7. Já
    8. Gogga já en ekki Bush (þeir skilja sem skilja)
    9. ég er of latur til að hafa speki, og sennilega svarar það seinni hlutanum. Ég er of afslappaður.
    10. Segjum ekki frá því hér heldur bara framkvæmum eftir rúma viku!
    11. Já já
    12. Uppalinn rétt hjá Kántríútvarpinu svo nei ég fæ grænar þegar kántrí byrjar.
    13. Starfslokapartý dauðans.
    14 Aðeins duglegri og framhleypnari.
    15. Er ekki eitthvað svoleiðis í bígerð 10 mars? ;-)
    16. Sumt viltu ekki vita.
    17. Enn ein ástæða þess að fara ekki í sund.
    18. Ég myndi ekki auglýsa það hér.
    19. Draga þig í körfu og berja þig aðeins.
    20. Hress vinnufélagi þó það hafi varað of stutt.
    21. Sorry bara ekki mín týpa svo neipp.
    22. Rauður.
    23. Er það undarlegt að langa meira að endurlífga hund? Það var leitt að missa hann en enn verra að missa aftur mannveru sem var náinn þegar maður er búinn.
    24. Í augnarblikinu er ég í vonduskapi langar út að hjóla og með hausverk en þetta eru jú þrjár staðreindir á verði einnar.
    25. Henti því littla bloggi sem ég hafði í gær svo neipp.

  4. Sigurlaug frænka Sagði:
    mánudagur 5.mars, 2007 klukkan 10:03

    1. Hefuru slegið einhvern í andlitið? Ekki svo ég muni
    2. Hve gamall/gömul ertu? Alveg að verða 28
    3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ? Frátekin
    4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld? Bæði
    5. Dreymir þig á nóttunni? Ójá
    6. Hefuru séð lík? já
    7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?jebbs
    8. Ertu að fíla Gogga Bush? NOOOOOOOOOOOOO
    Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.
    9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega? Þetta reddast allt saman
    10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera? allt sem þú villt
    11. Treystiru lögreglunni? Já
    12. Hlustaru á kántrí? já
    13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér? Allir góðir rúntar! :)
    14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera? Ég er fullkomin, hehe
    15. Myndiru deita mig? Pabbi minn og mamma þín segja að ég megi það ekki, hahahahahahaha
    16. Í hverju sefuru? Nakin
    17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda? Nei
    18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ? Held ekki
    19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag? Fara á rúntinn, hehe
    20. Hvað finnst þér best um mig? Þú ert eilíflega jákvæður
    21. Er ég hot? je beibí
    22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn? bleikur
    23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera? Helst báða afa mína
    24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig. Ég er viðbjóðslega löt
    25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér? ég var á undan þér, nananana!!!

  5. Sif Sagði:
    miðvikudagur 28.mars, 2007 klukkan 20:24

    1. Hefuru slegið einhvern í andlitið? Hmm…já ég held það. Sumum hlutum reynir maður samt að gleyma.
    2. Hve gamall/gömul ertu? Ég er 26
    3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ? Ó svo frátekin
    4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld? Sitt lítið af hvoru, suman mat er hreinlega dónalegt að borða með áhöldum.
    5. Dreymir þig á nóttunni? Já, allt of mikið.
    6. Hefuru séð lík? Já, því miður.
    7. Hefuru óskað þess að einhver deyji? Já (alltof oft…enda mikil dramadrottning)
    8. Ertu að fíla Gogga Bush? Nibb
    Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.
    9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega? Tek því alltof alvarlega en hef húmor á réttum stundum. Get verið jafn neikvæð og ég get verið jákvæð. Hef samt tröllatrú á því að þetta “reddist”
    10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera? Hmm… kannski horfa á One Tree hill eða einhverja góða sápu.
    11. Treystiru lögreglunni? Já
    12. Hlustaru á kántrí?Nei, en fíla samt Dollí Parton
    13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér? Vá frekar erfitt að velja úr. Beni stendur samt alltaf upp úr, bara af því að þú rúlaðir í þeirri ferð!
    14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera? Ég myndi vilja hætta að vera svona “fullkomin”, leyfa mér aðeins að slappa af meira.
    15. Myndiru deita mig? Nei, við myndum drepa hvort annað á 3ja deiti. En þú ert samt bestastur og yndislegastur.
    16. Í hverju sefuru? Til skiptis náttfötum og …
    17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda? Jámm
    18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ? Já sennilega. fer eftir glæpnum samt.
    19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag? Knúsa þig í tætlur.
    20. Hvað finnst þér best um mig? Knúsið þitt og smitandi brosið.
    21. Er ég hot? Þokkalega
    22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn? Blár
    23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera? Úff…get ekki valið… Sigfús afa…fékk aldrei að kynnast honum og væri meira en lítið til í að fá tækifæri til þess.
    24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.Mér finnst lifur ógeðslegasti matur í heimi.
    25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér? Jámm, það held ég nú.

Álit