« -til hamingju með afmælið drífa mín :) stelpan er … | Heim | -vá hvað ég er orðin latur við að skrifa hérna!!!!… »

-ég verð að viðurkenna það að ég er sennilega einn…

Árni | þriðjudagur 4.mars, 2003

-ég verð að viðurkenna það að ég er sennilega einn sá versti sem fyrir finnst í að muna afmælisdaga… á sunnudaginn gleymdi ég t.d. 2.ja ára trúlofunar afmæli okkar drífu, e-ð sem hún var að sjálfsögðu ekki sáttust við… ég hef meira að segja átt það til að gleyma eigin afmæli, myndi sennilega gleyma því oftar ef mamma væri ekki alltaf svona dugleg að minna mig á það (hún fær alltaf að halda veislu fyrir mig)… ég verð að fara að fá mér e-ð innbyggt dagatal sem hjálpar mér að muna svona hluti…

-hversu sjúkt fólk er eiginlega til á þessu landi??? hélt að þetta væri liðin tíð eftir að steingrímur njálsson var settur í steininn í 5. eða 6. skiptið…

-ef að fréttablaðið er í eigu baugsfeðra, þá er mogginn í eigu davíðs oddssonar… jah eða manna sem fara vel í vasa hans… það er ekki minnst einu orði á ruglið sem var í gangi í gær, fyrst í morgunþætti rásar 1 og 2, né það sem hann sagði í kastljósinu… ekki það að þetta sé e-ð virkilega fréttnæmt, en það er bara ótrúlega fyndið hvað kongurinn heldur að hann geti sagt það sem honum sýnist, þegar honum sýnist… sakar alla málsaðila sem á móti honum standa um ósannindi og hrógburð í sinn garð, en skítur svo yfir þá og kemur með villtar ásakanir og þykist ekki þurfa sannanir fyrir máli sínu, því hann er jú löglærður, annað en þeir kastljósmenn… það var greinilegt í gær hvað hann lítur mikið niður á almenning… heldur því fram að hann hafi betri yfirsýn yfir þetta mál og megi alveg koma með stórar órökstuddar ásakanir, því að það sé svo augljóst… þá er nú spurning hvort það sé ekki líka augljóst að hann hafi sennt lögregluyfirvöld á jón ólafs og baug??? það er allavegna jafn ljóst ef e-ð er…

-vá, ég hélt aldrei að ég myndi halda með baug, hvað þá jóni ólafs, í einhverju máli… einmitt þau stórveldi sem ég þoli ekki að sjá á jafn frjálsum markaði og sá íslenski á að vera…. en nú hefur yðar hátign gengið of langt… NIÐUR MEÐ KONUNGSVELDI HR.ODDSSONAR OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS!!!!!! takk fyrir….

Fl: Annað |

Álit