« -ég verð að viðurkenna það að ég er sennilega einn… | Heim | -að hugsa sér að mar þurfi að kæra til að fá bætur… »
-vá hvað ég er orðin latur við að skrifa hérna!!!!…
Árni | þriðjudagur 11.mars, 2003
-vá hvað ég er orðin latur við að skrifa hérna!!!!! svona er þetta þegar mar gerir nánast ekkert af sér, þá er einfaldlega ekkert að frétta…
-perla rós varð reyndar veik á föstudaginn í fyrsta skiptið, en var búin að losa sig við hitann um kveldið og orðin góð, svo tók hún uppá því í gærkveldi að kvebbast og er drífa heim hjá henni núna, hún er reyndar ekkert slöpp bara með slæmann hósta…
-já svo fór mar að djamma á laugardaginn, held ég hafi ekki verið svona drukkin í marga mánuði (líðan sunnudagsins var eftir því) fór meö duglegum til félaga hans eftir að sif og arnar höfðu komið í mat hjá okkur, ég sem var orðin nógu drukkinn af rauðvíninu sem var með matnum, helti í mig bjórnum mínum áður en við fórum í bæinn og skemmti mér nú bara nokkuð vel… hitti bóas og ingu mæju á kaffibarnum þar sem hann tilkynnti mér að þau væru að fara að gifta sig í sumar
algjör snilld…
-annars er bara nóg að gera í skólanum… mánuður í próflestrarfríið og fullt af verkefnum og æfingaprófum þangað til… vonandi gengur mér betur en um jólin……….
Fl: Annað |