« Hvað í!!! | Heim | Tryggingafélög… »

Ekkert að frétta???

Árni | föstudagur 7.apríl, 2006

Ef ég segði að það væri ekkert að frétta þessa dagana væri ég að ljúga…

Urður Ósk tók fyrstu skrefin sín í dag :D
ég missti reyndar af því þar sem að ég er í vinnunni… en Drífa hringdi beinnt í mig og uppfærði mig um stöðu mála :) fæ vonandi að sjá hana taka þessi skref í kveld bara ;)


Svo er það íbúðin……
við erum semsagt búin að fá hana afhenda… og erum þessa dagana að gera allt tilbúið í henni… (parketleggja, flísaleggja, mála herbergið hennar Perlu Rósar “prinsessubleikt” :D)
Svo er bara að flytja inn um páskana :D


Í kveld er stefnan sett á að mála smá, koma parketi upp í Álfkonuhvarf 53 og horfa á lokaþátt Idolsins
Á morgun er svo síðasti tími Perlu Rósar í tónlistarskólanum og svo farið í að leggja parket…

eru ekki sjálfboðaliðar í húsgagnaflutninga um páskana??? :D


kanski að maður ætti svo að blogga oftar… þessar samantektarfærslur eru ekki alveg að gera sig allavegna……… ;)

Fl: Annað, Daglegt líf, Fjölskyldan |

3 álit á “Ekkert að frétta???”

  1. Telma Sagði:
    laugardagur 8.apríl, 2006 klukkan 14:32

    Þú ættir að benda dætrum þínum á að blogga oftar líka, mig er farið að lengja í nýrri myndir af þeim:) Þær eru alltaf að verða sætari og sætari!

  2. Árni Sagði:
    sunnudagur 9.apríl, 2006 klukkan 11:21

    kanski að tölvunördið á heimilinu (ich) taki smá ábyrgð á mynda og bloggleysi dætrana…
    það stendur til bóta eftir flutninga ;)

  3. Telma Sagði:
    sunnudagur 9.apríl, 2006 klukkan 17:04

    Jei!

Álit