« Ekkert að frétta??? | Heim | (eyða)!!! »
Tryggingafélög…
Árni | mánudagur 10.apríl, 2006
Var að lesa viðtal við forstjóra Sjóvá á mbl.is…
þar er fjallað um þá hugmynd að tryggingafélög komi að uppbyggingu og rekstri umferðamannvirkja…
Er það ekki bara nokkuð góð hugmynd??? ríkisstjórnin getur hætt að láta mikilvæga vegakafla bíða meðan þeir eyða 10 milljörðum í göng sem nánast enginn mun nota og umferðaöryggi myndi aukast á sama tíma…
Hversu oft er maður búinn að keyra Hellisheiðina og bölva því að þessir pólitíkusar skuli láta einhverjar nefndir finna út fullt af lausnum, bara til að geta svo tekið sér nokkur ár í að rökræða fram og til baka, og aftur svo, hvaða lausn sé sú besta… og sú hagkvæmasta… og sú vinsælasta… og svo framveigis!!!
Er ekki málið að láta einkafyrirtæki gera hluti fyrir okkur á einu ári… í stað þess að rökræða í 10 og framkvæma (kanski) svo???