« 111574685859435371 | Heim | ég og gandhi… »
“bændur framtíðarinnar???”
Árni | fimmtudagur 12.maí, 2005
þetta var fyrirsögnin á baksíðu moggans í dag… og undir henni var mynd af perlu rós haldandi á lambi
leikskólinn hennar perlu rósar fór semsagt í sveitaferð í gær… nánar tiltekið í grjóteyri í kjós…
þetta var hin mesta skemmtun fyrir alla krakkana… beljur og kálfar, hestar og folöld, hundar og hvolpar, kettlingar, lömb, kiðlingar, hanar og ungar……………. allt sem krakki á að sjá þegar hann (eða hún…) fer í sveitna…
en það var greinilegt hvaða barn hafði mesta reynslu úr sveitinni… baksíðufyrirsætan mín
hún perla rós var eins og drotting í ríki sínu… labbaði að næsta lambi, tók það upp og fór að sýna hinum krökkunum að þessi dýr væru ekkert til að óttast ![]()
svo fór hún að gefa folaldinu að borða, hélt á kettlingnum og knúsaði og reyndi að halda á einum unganum (sem var greinilega ekki jafn sáttur við að láta halda á sér og hin dýrin
)
já dóttir mín gæti alveg orðið bóndi framtíðarinnar

Fl: Fjölskyldan |
mánudagur 23.maí, 2005 klukkan 23:54
Fallegust - til hamingju með þriggja ára afmælið elsku hjartans litla stúlka!
Langamma