« YOU´LL NEVER WALK ALONE!!! | Heim | Pæjan með sólgleraugun hans pabba :) »
’bout time…
Árni | þriðjudagur 31.maí, 2005
hef einhverra hluta vegna ekki haft mikið að segja hér á síðunni… þrátt fyrir að hafa nóg að tala um…
vá já… ég hef í raun meira að tala um en mig minnti………
síðasta hálfa mánuðinn er önnur dóttir mín búin að fæðast…
ég og drífa áttum 6 ára afmæli þann 19. síðastliðinn…
perla rós varð 3.ja þann 23…
svo kom duglegur (haukur…) heim frá kanaríkjunum eftir að hafa verið þar í ca. hálft ár…
orlof (hrói…) útskrifaðist úr listaháksóla íslands af arkitektabraut… og ekki nóg með það hledur dúxaði hann þennan fyrsta árgang sem útskrifast úr deildinni… og það á fyrsta afmælisdegi martins (sem er sonur hans :)…)
úff… þetta eru allt atburðir sem ég gæti talað heilmikið um… en hef einhverra hluta vegna ekki gert…. :S
svo er addi að klára fjórða árið í læknisfræði við háskóla íslands í dag… og það þýðir væntanlega það að ég fæ loksins að heyra eitthvað aftur í honum… (hann er búinn að vera lokaður inni að lesa síðustu mánuði….) hann er jafnvel að spá í að kíkja hingaði í sveitina næstu helgi í bústaðinn sem foreldrar hans eiga rétt fyrir utan víkina….
já svo er það það… ég er kominn í víkina í gott tjill næstu vikuna eða svo…
skruppum inn í þakgil í dag og ætlum sennilega til botna á morgun…
ég sem hélt að þessi pistill yrði stuttur og þæginlegur… í staðinn varð hann bara að leiðinlegri upptalningu sem ég efast um að nokkur muni nenna að lesa til enda…
ef þér tókst að klára að lesa allan þennan pistil án þess að sofna skaltu endilega skrá eitt eða svo komment og láta mig vita afhverju í ósköpunum þú kæri lesandi nenntir því……….. ![]()
Fl: Dagbók |
fimmtudagur 2.júní, 2005 klukkan 16:23
Ohhhh…til hamingju með nýjustu krúttsprengjuna og brosbarnið
föstudagur 3.júní, 2005 klukkan 14:57
Vá vá vá, fullt að gerast…ætla að koma og sjá nýju prinsessuna þegar þið komið aftur í bæinn.
Og ekki lítið búið að gerast…. til hamingju Hrói með útskrift og soninn! og velkominn heim Duglegur!
laugardagur 4.júní, 2005 klukkan 00:51
Ég er alltaf að horfa á fallegu litlu systurnar á skjánum hjá mér. Gaman að frétta af ykkur. Góða ferð í Botna.
Hjartans kveðjur -