« Vatn á Mars… | Heim | YNWA… »
Kjósum rétt…
Árni | laugardagur 12.maí, 2007
Ég hef aldrei verið góður í að koma því sem ég er að hugsa niður á blað (eða tölvuskjá) þannig að ég ætla að leyfa mér að “ræna” orðum hans Einars Arnar:
Ég er jafnaðarmaður.Ég trúi því að allir eigi að fá jöfn tækifæri til að mennta sig, óháð efnahag. Ég trúi því að konur og karlar eigi að sömu laun fyrir sömu vinnu. Ég tel það ekki vera hlutverk ríkissins að selja orku á gjafverði til stórfyrirtækja. Ég trúi því heldur ekki að okkar kynslóð hafi einhvern rétt til þess að nýta alla orku landsins í sína þágu. Það er stórkostleg frekja.
Ég trúi því að ríkið eigi ekki að skapa störfin, né að þingmenn eigi að koma með tillögur að nýsköpun, því ég er sannfærður um að í réttum skilyrðum muni almenningur sjá um nýsköpunina. Ríkið á einungis að skapa hér tækifæri til þess að atvinnulífið og þá sérstaklega minni fyrirtæki geti blómstrað. Það er erfitt í efnahagskerfi þar sem ríkja miklar gengissveiflur og okurvextir einsog á Íslandi í dag.
Ég vil að Íslendingar sækji um aðild að ESB og taki upp evru sem gjaldmiðil. Krónan er ónýtur gjaldmiðill, sem er haldið uppi aðallega útaf tilfinningarökum. Gengissveiflur og vaxtaokur er fyrirtækjum og einstaklingum mikill baggi. Ég vil að Íslendingar skilgreini sín samningsmarkmið við ESB, sæki um aðild og leggi svo aðildarumsóknina í dóm kjósenda. Allar aðrar Norðurlandaþjóðir hafa fengið slíkt tækifæri nema við. Það er ósanngjarnt.
Ég trúi því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sé líklegust til að setja þau mál í forgang, sem ég tel mikilvægust. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt að hann er ófær um að viðhalda stöðugleika í íslensku þjóðfélagi. Flokkurinn sem auglýsti sig eitt sinn undir orðinu “stöðugleiki” er nú sami flokkur og stjórnar í landi þar sem vaxtaokrið er með eindæmum, verðbólgan yfir takmörkum og viðskiptahallinn gríðarlegur.
Í dag kaus ég Samfylkinguna… og er stoltur af því…
Fl: Pólitík |
fimmtudagur 31.maí, 2007 klukkan 21:27
oohhh vá - congratulera!!
minnti að þú værir “sjalli”
Frábært og sammála!
Stofnum flokk þegar ég
kem heim og förum á þing!
laugardagur 2.júní, 2007 klukkan 10:21
ég er til