« Pæjan með sólgleraugun hans pabba :) | Heim | þema plötur… »
af hverju???
Árni | föstudagur 10.júní, 2005
ég skil ekki afhverju það þarf alltaf að gagnrýna allt… jafnvel þegar fólk er að reyna að gera góða hluti þarf alltaf einhver að koma og gagnrýna þá…
“íslandsvinurinn” damon albarn (sem er í hinni skelfilega leiðinlegu hljómsveit gorillaz og drap hina annars ágætu sveit blur með leiðindum sínum…) þurfti endilega að gagnrýna hið annars frábæra framtak bob geldof…
Hér er ótrúlega mikill fjölbreytileiki. Menning svartra hefur ríkari áhrif á samfélag okkar en nokkru sinni fyrr. Hvers vegna er listinn svona fjandi engilsaxneskur?
þessi gagnrýni er sérstaklega leiðinleg því geldof hefur fyrir þó nokkru útskýrt afhverju það er…
Bob Geldof, skipuleggjandi tónleikanna, hefur sagt að ekki hafi fleiri svartir tónlistarmenn séð sér fært að koma fram á tónleikunum.
lengi má gott gera betur… en fyrr má nú vera að það þurfi að gagnrýna það…
Fl: Dagbók |
miðvikudagur 15.júní, 2005 klukkan 16:31
Já, þetta fannst mér fyndin og dramatísk gagnrýni (ekki bara hjá Damon) þegar maður fékk listann yfir þá sem höfðu afþakkað…Kill, kill the white man…