« af hverju??? | Heim | nýji varabúningurinn »
þema plötur…
Árni | þriðjudagur 21.júní, 2005
ég hef alltaf haft gaman að vel sömdum lagatextum…
það eru sumir sem eru fæddir í þennan heim til að búa til góða texta og koma frá sér því sem þeir eru að hugsa í skemmtilegt og hnitmiðað form… ég er ekki einn af þeim…
ég man eftir því að hafa sungið mig raddlausan við lög á borð við “master of puppets” með metallica, án þess að vita í raun um hvað ég var að syngja… síðar meir komst ég svo að því að þetta lag var um eiturlyfjaneyslu og hvernig hún getur heltekið þann sem verður háður henni… í kjölfarið las ég textann aftur, horfði á hann og vá…
Taste me you will see
More is all you need
You’re dedicated to
How I’m killing you
svo komu línur eins og:
Needlework the way, never you betray
Life of death becoming clearer
Pain monopoly, ritual misery
Chop your breakfast on a mirror
“vá hvað james hetfeild er mikill snillingur” hugsaði ég með mér… and he is…
nú nýlega hef ég verið að hlusta á nokkrar plötur sem kalla mætti “þema plötur”… plötur þar sem ekki bara lagið er um eitthvað ákveðið, heldur öll platan…
báðar plötur the mars volta eru góð dæmi um frábærar plötur sem ganga ekki bara út á tónlistina… heldur einnig að segja sögu…
svo er það ein af mínum uppáhaldsplötum… “so impossible” með dashboard confessional…
þessi plata inniheldur bara 4 lög… en þau eru öll meistaraverk… sérstaklega hefur þó lokalag plötunar “hands down” verið í miklu uppáhaldi hjá mér…
lögin 4 segja síðan mjög fallega sögu, sem flestir ættu að kannast við, um strák sem er í menntaskóla og stelpu sem hann er að deyja hann er svo hrifinn af…
fyrsta lagið “for you to notice” fjallar um að hann er að óska sér að hún taki eftir honum… að allt sem hann segi þegar hann er í kringum hana hljómi ákkúrat rétt og heilli hana svo mikið að hún endi með að hringja í hann…
annað lagið “so impossible” fjallar svo um þegar hún kemur og spyr hann hvort hann ætli í partý um kveldið… hana langi að hitt hann utan skóla…
svo fer hann að hugsa um hvað hann eigi að segja við hana í partýinu..
í þriðja laginu “remember to breathe” er hann svo að hafa áhyggjur af því hverju hann eigi að vera í um kveldið, hann verði að heilla hana því hún er alltaf fullkominn og hann verði að standa undir kröfunum…
í lok lagsins minnir hann sjálfann sig á að það var hún sem bauð honum og að hann verði að muna að anda bara…
fjórða lagið “hands down” fjallar svo um partýið… hvernig þau lauma sér út í eitthvað skotið svo að vinirnir séu ekki að angra þau og spurja þau alskyns óþæginlegra spurninga (eruð þið saman???) og þau geti fengið að vera bara 2 ein… geti bara legið saman og spjallað…
platan endar svo á því að hann fylgir henni heim og þau kyssast… voða bíómyndarlegt
textinn í þessu lagi er bara svo mikil snilld að hálfur væri nóg… línur á borð við:
My hopes are so high that your kiss might kill me. So won’t you kill me, so I die happy.
ég hef persónulega aldrei heyrt fyrsta kossinum lýst jafn vel og þarna… eftirvæntingin er oft svo mikil að maður gæti farið yfirum…
sjálfur hefur chris carrabba (sem er í raun hljómsveitin…) lýst “hands down” sem besta stefnumóti ævi sinnar…
allavegna… alltaf gaman að góðum sögum ![]()