« nýji varabúningurinn | Heim | hehehe »

í alvöru???

Árni | fimmtudagur 23.júní, 2005

ég sá auglýsingu um daginn fyrir íslenskan “létt” bjór… í henni var bókstaflega sagt að ef þú drykkir þennan bjór þá myndirðu eignast vini…????????

í kjölfarið hef ég verið að fylgjast aðeins með bjórauglýsingum í imbakassanum og þær virðast allar ganga út á það sama… ef þú drekkur þennan bjór muntu eignast vini og vera vinsæll…

nógu fáránlegt er að það séu bjórauglýsingar sýndar í landi þar sem áfengisauglýsingar er “bannaðar”… en að þær skuli flestar snúast um það að þú verðir vinsæll og vinamargur þegar þú drekkur finnst mér meira umhugsunarefni……………..

Fl: Annað |

Álit