« Arnaldur… | Heim | Sumarfríið… »
Þá hefst sumarið…
Árni | miðvikudagur 11.júní, 2008
Jæja… þá er Drífa farin austur…
Ég var mjög stressaður fyrir þessum degi, vissi ekkert hvernig Arnaldur myndi láta þegar hann sæi enga mömmu í rúminu um nóttina…
En hann er greinilega orðinn nógu stór til að höndla þetta… svaf vel í nótt og vakti mig ekki fyrr en um hálf 6 fyrst og svo ekki almennilega fyrr en hálf 8
Það tók mig ekki nema 2 klukkutíma, frá því að ég vaknaði, að vera búinn að koma krökkunum á sína staði og mér í vinnuna
Nú er vonandi að þetta gangi svona vel út mánuðinn, þangað til að við förum í frí, og svo að júlí verði góður líka…
Það verður þó fróðlegtast að vita hvernig ég höndla að hafa enga Drífu til að kúra með á kveldin………… ![]()
Fl: Dagbók, Fjölskyldan |
fimmtudagur 12.júní, 2008 klukkan 18:43
Single pabbi í heilan mánuð! Hvað er Drífungur að fara að gera í Vík. Ég tek ofan af fyrir þér! Við erum búin að bóka flug heim í sumar. Komum 5. ágúst og förum 29. ágúst (náum the big 30 hjá þér). Talandi um… Hvað er planið fyrir það?
Kveðja frá NY,
Hrói
fimmtudagur 12.júní, 2008 klukkan 21:25
Heila 2 mánuði
Drífa er byrjuð að vinna við fiskeldi á Kirkjubæjarklaustri… en býr hjá foreldrum sínum…
Þið komið einmitt til landsins þá þegar krakkarnir byrja í leikskólanum í Vík
Annars er ekkert beint planað hjá mér á afmælinu… veit ekki enn hvenær ég kemst í uppskurð út af krossbandaslitunum mínum… það verður sennilega í ágúst, ábyggilega á svipuðum tíma og þið lendið á skerinu