« hmmm…… | Heim | bush er bjáni… »

foo fighters…

Árni | þriðjudagur 5.júlí, 2005

hjalti hringdi í mig í fyrradag og spurði hvort ég vildi kíkja með honum á foo fighters tónleikana sem eru í kveld… og auðvitað sagði ég já… (þ.e. eftir að hafa fengið leyfi hjá drífu :) )

mér finnst nokkuð magnað að maður sem á sínum tíma var talinn einn allra besti trommari heims, og í nýlegri könnun var valinn næst bestur á eftir engum öðrum en john bonham, skuli hafa tekið upp á því einn daginn að færa sig framar á sviðið taka upp gítarinn og gerast söngvari………. ekki einu sinni phil colins gat það…. ;)

dave grohl hefur alltaf verið hetja hjá mér… nirvana var uppáhalds hljómsveitin mín í mörg ár og foo fighters hafa alltaf verið ofarlega á blaði…
en eftir að maður heyrir svona þá fer maðurinn einfaldlega í goðatölu… eftir öll þessi ár og allt sem hann er búinn að afreka þá er hann enn að láta gott af sér leiða… Snillingur með stóru S-i :)

ég ætla allavegna að skemmta mér vel í kveld yfir foo og qotsa

Fl: Dagbók, Tónlist |

2 álit á “foo fighters…”

  1. Karl Jóhann Sagði:
    miðvikudagur 6.júlí, 2005 klukkan 18:02

    Flottir tónleikar, maðurinn er einfaldlega einn af þessum ofursvölu sem eiga sannlega virðingu okkar skilið!
    Spáðu samt hvað það væri freaky ef þú værir til dæmis á litlum pöbb í Svíþjóð sem enginn veit hvað eða hvar er og inn labbaði Eddie Vedder og færi að syngja! hehehehe, fannst bara fyndið með kanakrakkana sem voru á strengjasveitaferðalagi, góð saga fyrir þau :)

  2. smiley Sagði:
    fimmtudagur 7.júlí, 2005 klukkan 09:56

    tónleikarnir voru frábærir… fannst queens of the stone age sérstaklega skemmtilegir… (foo fighters voru líka frábærir, en qotsa voru að spila framar vonum…)

    já dave grohl á ekkert annað en virðingu skilið fyrir það að vera eðal gaur :)

Álit