« 123.is | Heim | meiðsli… »

blaðið í dag…

Árni | mánudagur 18.júlí, 2005

það er tvennt í blaðinu í dag sem vakti athygli mína…

fyrst var það greinin eftir kristinn h. gunnarsson, þar sem hann gagnrýnir harðlega árna mathiesen, sjárvarútvegsráðherra, og valgerði sverrisdóttur, iðnaðarráðherra…
hann spyr þau beint út hvort ríkisstjórnin sé til sölu…

er sjávarútvegsráðherra kominn svo langt af leið að hann telji eðlilegt að einkafyrirtæki geti borið fé á stjórnvöld í því skyni að fá þau til að taka tiltekna stjórnsýsluákvörðun?

og þeir sem ekki eiga peninga fá þá líklega engin störf til sín eða hvað árni mathiesen?

kea er semsagt búið að bjóðast til að borga ríkisstjórninni fé til þess að fá ríkisstörf norður í land…

á ísland að verða land þar sem hinir ríku komast upp með allt, líkt og í kanaríkjunum??? vá hvað ég vona ekki…

####################

talandi um að hinir ríku telji sig geta komist upp með allt, þá er hin greinin sem ég las um hina undurfögru söngkonu (kaldhæðni fyrir þá sem ekki vita…) jessicu simpson…

hún er eitthvað að tala um að vilja ættleiða barn (líklegast til að skemma ekki sinn “fagra” líkama í barnsburði…)
svo kemur “punchline-ið” að mínu mati… hún á víst að hafa farið til mexicó þegar hún var 16 ára því henni langaði í barn í afmælisgjöf og langaði að ættleiða það frá mexícó… en hún mátti víst ekki fara með það yfir landamærin þannig að hún varð að hætta við…??????…

ég reyndi í gær að horfa aðeins á þennan “raunveruleikaþátt” hennar í gær á sirkus… en það er bara ekki hægt, hún er allt of pirrandi…
meiraðsejga maðurinn hennar var að verða geðveikur á henni… var sífellt að kalla hana “spoild brat!!!”
hún viðurkenndi að vísu að hún væri ofdekruð… en “brat”… ó-nei!!!! (veit ekki hvað er besta íslenska orðið til að þýða “brat”…)

það er ótrúlegt hvað fólk sem hefur fengið allt upp í hendurnar alla sína ævi getur verið raunveruleikafirrt……..

Fl: Annað, Pólitík |

Álit