« blaðið í dag… | Heim | lífið í sveitinni… »
meiðsli…
Árni | þriðjudagur 19.júlí, 2005
jæja það hlaut að koma að því…. ég er kominn á hækjur aftur…
tók mig til á sunnudaginn í körfunni og snéri all hressilega upp á ökklann minn… og þarf því að tölta um á 3 jafnhægum þessa dagana…
sem betur fer er ég ekki með rifin liðbönd eins og síðast… bara illa tognaður… og ætti því að geta gengið aftur um “eðlilega” innan tveggja vikna… en ég mun sennilega ekki fara í körfu aftur fyrr en vel er liðið á ágúst mánuð… og hef því nægan tíma til að safna aftur bumbunni sem ég var búinn að vera svo duglegur að losa mig við undanfarið………………
svo er það bara að skreppa í ca. 2 vikur í sveitina á morgun eða hinn… og þá fyrst mun ég sennilega fá að sjá hversu leiðinlegt það er að hangsa í sveitinni á hækjum
drífa vill nebbla ekki kaupa svona handa mér…
p.s. er einhver sem vill sjá mynd af hinum undurfagra ökkla mínum??? drífa ákvað nebbla áðan að það væri sennilega gaman að taka fullt af myndum af honum… sýna hversu hættulegar íþróttir eru… ![]()
Fl: Dagbók, Daglegt líf |
miðvikudagur 20.júlí, 2005 klukkan 17:05
Grey íþróttaálfur. Við sjáumst í Víkinni um helgina!! Ég kem snemma á laugardeginum og fer á sunnudegi. Ég bjalla á þig. Það verður appelsín og slúður á Halldórskaffi!!
fimmtudagur 21.júlí, 2005 klukkan 00:43
já mar appelsín og slúður hljómar guðdómlega
snilldin ein 
annars var drífa svo góða að leyfa mér að kaupa svona dóterí
fimmtudagur 21.júlí, 2005 klukkan 21:09
Ég ætlaði einmitt að segja að þú hefðir megað fá mitt lánað en svo áttaði ég mig á því að ég vildi það ekki… ekkert persónulegt, sá bara ekki fram að geta verið frá sjónvarpi í tvær vikur!
föstudagur 22.júlí, 2005 klukkan 00:27
hehe já mér datt ekki einu sinni í hug að biðja þig um að lána mér græjuna

djöfull er samt næs að vera með 250 Gb disk nánast fullan af dóti til að glápa á á meðan ég dvel hér í sveitinni…
og fyrir þá sem hafa áhyggjur af mér, þá er ég nánast ekkert búinn að horfa á sjónvarpið í dag… fórum í sund og svo í þakgil og ég er orðinn sólbrúnn og sæll, þrátt fyrir að geta ekki gengið…