« meiðsli… | Heim | wulff morgenthaler… »

lífið í sveitinni…

Árni | sunnudagur 24.júlí, 2005

jæja þá erum við búin að vera í víkinni í 5 daga og löppin á mér er öll að koma til…
skrapp meiraðsegja með völu frænku upp í þakgil í gær og labbaði fullt… er í raun hættur að notast við hækjurnar… enda er ökkla hlílfin mín að blífa vel :)

annars er ekkert búið að vera spes hér í víkinni sjálfri… búið að vera þoka hérna í 3 daga… sólin var fyrst núna í kveld að láta sjá sig…
en hún er búin að skína allan tíman í þakgilinu og tengdó því orðin vel sólbrunnin og sæl :)

jamms svo er það bara verslunnarmannahelgin næst… landsmótið og fínerí hér í víkinni… svo bara aftur í bæinn á þriðjudegi eða miðvikudegi… vonandi að veðrið verði jafn gott næstu helgi og það er búið að vera núna… þetta er búin að vera methelgi í gilinu og alveg bókað með vika á síðunni… yfir 1000 manns sem skoðuðu hana… (sbr. 9000 sem voru búnnir að skoða hana síðasta rúma árið…. :D ekkert nema gott um það að segja…)

Fl: Dagbók |

2 álit á “lífið í sveitinni…”

  1. Vala Sagði:
    sunnudagur 31.júlí, 2005 klukkan 15:15

    Hejjj, takk fyrir mig :)

    Ég er reyndar ennþá að jafna mig á bílferðinni upp í Þakgil, ég mæli ekki með því að saklaust fólk fari með þér í bíl þessa vegalengd….. ég var búin að vera úti í sólinni að safna brúnku á fésið mitt, en ég held ég hafi verið orðin grá í framan eftir ferðina… hehe.. já og svo færðu líklega reikning frá sálfræðing sem ég þurfti að heimsækja fyrir áfallahjálp…

    Ég ætla að berjast fyrir því að ég fái að gista í Þakgili einn daginn þó að ég sé ekki fjölskyldufólk. Ekki spurning. Jahh, nema ég mundi drusla Hveragerði litlu með mér. Við erum ein lítil fjölskylda. Eða hvað.. ég er fjölskyldufólk, ég á fjölskyldu, ég á mömmu og pabba og systkin…. hohoho

  2. árni Sagði:
    sunnudagur 31.júlí, 2005 klukkan 22:29

    hehehe já það er ekki fyrir hvern sem er að setjast upp í bíl með mér :D
    annars er drífa farin að veita farþegum mínum áfallahjálp, þannig að þú getur talað við hana ;)

    þetta fjölskyldufólksdæmi var bara sett inn til að fæla burt “unglingameðofmikiðafáfengogofmikillæti” pakkið sem hefur komið í gilið… það er of mikið vesen á sjóleiðis fólki… en þið verahvergi eru báðar velkomnar hvenær sem er :D

Álit