« Bretar hafa hæfileika… | Heim | Nýjar myndir… »

Punktablogg…

Árni | fimmtudagur 5.júlí, 2007

Stígur félagi er farinn að koma með svona fín punktablogg öðru hvoru… fín leið til að blogga þegar þú hefur ekki mikið að segja um neinn sérstakan hlut, en villt samt koma einhverju á síðuna… :)

Við erum stödd í Víkinni þessa vikuna…
Perla Rós er búin að vera á leikjanámskeiði, sem gefur Urði Ósk meiri tíma til að leika við foreldra sína meðan Arnaldur sefur (sem er orðinn ansi stór hluti dagsins :D)
Ég er búinn að lækka forgjöfina mínu um 3… og svo tókst mér að ná mér í einhverja pest… en hún virðist þó sem betur fer aðeins vera sólarhringspest, sem ég náði að mestu að sofa af mér (svaf í 14 tíma í nótt……………)

Á sunnudaginn munum við svo kíkja austur á Hérað og slaka á í bústað með foreldrum mínum…

Ég skal svo lofa að vera duglegri að hlaða inn myndum… búinn að taka nokkrar… en bara ekki komið þeim inn í tölvuna…

Svo verður maður að minnast á kaup sumarsins, hingað til…
Fernando Torres er mættur á Anfield :D

El Nino

Fl: Dagbók, Fjölskyldan, Liverpool FC |

Álit