« ný vika, nýtt lag… | Heim | að eiga vondan dag… »

ofurlaun…

Árni | miðvikudagur 10.ágúst, 2005

Drífa er oft að hafa áhyggjur af fjármálum okkar, kanski skiljanlegt þar sem ég er ekki að fá há laun og hún yfirleitt ekki nein (nema námslán og fæðingarorlof, sem eru ekki beint háar tekjur…)
ég reyni alltaf að hugga hana og næ að útskýra fyrir henni afhverju við erum ekki illa sett… við náum allavegna að borga reikninga okkar og getum borðað mat þegar við erum svöng…

skv. útreikingum sem yfirvöld hafa gert um meðal framfærslu landsmanna erum við þó að þrauka á furðulega litlum peningum… ættum í raun ekki að geta borgað reikingana okkar og borðað… skv. skilgreiningum yfirvalda erum við því ein af þessum “verst settu” á íslandi í dag… þrátt fyrir að hafa það fínnt :)

laun eru eitthvað sem ég hef þó aldrei skilið almennilega… ég var t.d. með helmingi hærri laun áður en ég fór í háksóla en ég er með núna… og svo eru menn sem eru ekki nema 8 árum eldri en ég með yfir 20 millur á mánuði… hann gæti borgað fyrir íbúðina mína og bílana mína á einum mánuði…
ég væri samt á sömu launum í fyrirtæki hans og ég er á núna þrátt fyrir það að ég væri að hjálpa til við að skapa þennan hagnað sem er á fyrirtækinu…
það er verið að segja fólki að til þess að fá það sem það á skilið verður það að vera yfirmanns efni… það nægir ekki að hjálpa til við verðmætamyndum heldur þarftu að vera með flott skilti á skrifstofunni þinni og vera vinur eigandans…

ég get ekki skilið hvernig hægt er að réttlæta laun hjá sumu fólki meðan kennarar, og aðrir álíka mikilvægir í nútímasamfélagi, fá ekki nema rétt yfir lágmarkslaun fyrir að reyna að koma öllum þessum fróðleik í næstu kynslóð íslendinga…

voðalegu nöldurskapi er ég í í dag… kanski að einn tebolli eða svo bjargi þessu :D

Fl: Dagbók, Daglegt líf, Fjölskyldan |

Eitt álit á “ofurlaun…”

  1. Drífa Sagði:
    miðvikudagur 10.ágúst, 2005 klukkan 13:32

    Elsku dúllan mín, ef það væri ekki fyrir þig, þá væri ég komin með magasár af peningaáhyggjum. Ýmindaðu þér bara lækniskotnaðinn þá ;) Með þessu spörum við enn meiri pening!!

Álit