« hvað er málið??? | Heim | já hvað eiga þeir sameiginlegt??? »
Whole Orange… ##viðbót##
Árni | fimmtudagur 8.september, 2005
-Gyðja-
-To be free-
ótrúlegt en satt þá eru liðin næstum 2 ár síðan ég hætti í þeirri hljómsveit…
ótrúlegra er þó að ég hafi ekki verið í bandi í rúmt ár… en maður hefur víst ekki tíma í allt… því miður…
á þeim X mörgu árum sem ég hef verið að hljómsveitast hef ég tekið þátt í að semja heilan helling af lögum…
eitt af þeim skemmtilegri þykir mér einmitt vera lag sem heitir Gyðja… hresst og skemmtilegt lag sem er alltaf gaman að skella í spilarann öðru hvoru…
biðst afsökunar á textaleysinu… en ólíkt öðrum böndum sem ég hef verið í, þá er hægt að skilja það sem Svansí er að syngja
viðbót
var að “surfa” aðeins og fann annað lag eftir Whole Orange á rokk.is sem heitir To be free…
rosalega fallegt og gott lag sem ég var nánast búinn að gleyma…
ég fæ enn smá gæsahúð þegar ég hlusta á lagið… (kanski ég taki það fram að ég átti engan þátt í að semja það :D)
Fl: Lag vikunar, Tónlist |