« I started a joke… | Heim | Svo lengi sem lifir… »
Skólinn hefst á ný…
Árni | föstudagur 16.september, 2005
á morgun byrja ég aftur í skóla… þá byrjar námskeiðið í tölvunördafræðum hjá ntv.is sem ég var svo djarfur að skrá mig á…
ég fór í gær og náði í bókina og gellan sem afhenti mér hana hló bara og sagði að það væri kanski gott að fara strax heim og byrja að lesa…
í fljótu bragði myndi ég halda að bókin sé um 3000 bls… en þar sem að það er ekkert bls tal í henni get ég ekki verið viss…
hún er samt minni en þessi… sem betur fer
eina leiðinlega við að fara á þetta námskeið er að það mun taka flestar helgar fram í byrjun des. og svo allar helgarnar í jan… þannig að ég missi t.d. af man.utd. tapa fyrir Liverpool á sunnudaginn…
en lífið heldur þó áfram og ég læri eitthvað nýtt ![]()
Fl: Dagbók |
föstudagur 16.september, 2005 klukkan 15:21
Það stendur 816 bls. á linkinum alllavega. Get ekki sagt að ég öfundi þig af lærdómsmagninu, skilst að svona námskeið séu ansi kröfuhörð! Kemurðu ekki bara svo og slakar á með bróður þínum í tölvunarfræðinni?
föstudagur 16.september, 2005 klukkan 15:28
hefði ekkert á móti því… ekkert…
held samt að ég fari í þetta fjarnám frá bifröst eftir áramót og reyni að klára viðskiptafræðina fyrst…
svo er spurning með tölvunarfræði eftir það… jah eða master í einhverju… aldrei að vita
föstudagur 16.september, 2005 klukkan 15:30
veit ekki með þetta bls. tal þarna… nema þeir séu að sleppa út þeim síðum sem skipta ekki máli…
ef bókin er 816 bls. þá er hún allavegna þykkasta 816 bls. bók sem ég hef séð…