« Svo lengi sem lifir… | Heim | Alveg að deyja… »

Margt smátt…

Árni | þriðjudagur 20.september, 2005

fór að pæla í því áðan hvað ein lítil ákvörðun getur haft mikil áhrif á restina af lífi manns…

þegar ég var 15 ára og fékk einkunnirnar úr samræmdu prófunum var það fyrsta sem kom upp í hugann minn: “vá þetta eru nógu góðar einkunnir til að ég komist virkilega inn í versló”… og það gerði ég…

árið sem ég varði í versló var aftur á móti ekki jafn skemmtilegt og ég hafði vonað…
kynntist fullt af góðu fólki… en fannst ég einhvernveginn aldrei eiga heima þarna…

þannig að eftir eitt ár í versló skipti ég yfir í menntaskólann í kópavogi og byrjaði nánast frá grunni þar… (því að námsráðgjafinn hélt því fram að hvað sem ég fékk í einkunn í versló gæti ekki gild þar, því þau vissu ekkert hvernig námsefnið í versló var og gátu því ekki metið það… eða eitthvað…)

í MK kynntist ég mörgum af þeim bestu vinum sem ég á í dag… djammaði feitt og hafði það gott…
og afþví að ég byrjaði upp á nýtt í MK var ég með krökkum sem voru ári yngri en ég í árgangi… sem þýddi það líka að ég fór ári seinna í útskriftarferð…

sú ferð var farin til benedorm… 3 vikur af stanslausu sukki og svíneríi :D frábærir tímar…
á bene kynntumst við vinirnir einmitt nokkrum nýjum andlitum… þeirra á meðal voru t.d. Vala frænka (uppgvötuðum reyndar ekki fyrr en í fyrra að við værum skyld…) og stúlkukind er Sif heitir… ;)

við héldum góðu sambandi við Sif eftir að við komum heim… og seinna þann vetur kynnti hún okkur fyrir stelpu sem hún hafði kynnst fyrr á önninni í MH… sú stelpa hét Drífa… og er í dag konan mín :D

eins og ég segi… ein lítið ákvörðun getur orðið að mörgum litlum ákvörðunum… sem verða loks að lífi manns…

sem betur fer hef ég tekið réttar ákvarðanir :D

Fl: Dagbók, Fjölskyldan |

3 álit á “Margt smátt…”

  1. Sif Sagði:
    þriðjudagur 20.september, 2005 klukkan 11:39

    Hæ sæti

    Talandi um afleiðingar: ef ég hefði ekki farið sömu Benidorm ferð hefði ég ekki kynnst þér og þá hefði ég sennilega ekki kynnst kallinum mínum :) Og það er annað par sem myndaðist út úr þessu Benidorm sulli öllu sem er jú par með barn sem ég hef reyndar aldrei séð en veit að heitir Martin og er með stór falleg brún augu! Og ef ég hefði ekki kynnst kallinum mínum, þá væri annað par ekki saman í dag sem nú er trúlofað. Því vil ég nýta þetta tækifæri til að koma því á framfæri að ég er Amor holdi klæddur!

  2. Árni Sagði:
    þriðjudagur 20.september, 2005 klukkan 11:57

    ég skal alveg styðja þá kenningu þína :D
    það eru allavegna margir okkar bestu vina rosalega ánægðir yfir því að hrói og haukur skulu hafa ákveðið að halda partý í 6-B ;)

  3. Drífa Sagði:
    þriðjudagur 20.september, 2005 klukkan 14:52

    Já þessar tilviljanir… Ekki kvarta ég, fullt af fallegum pörum og börnum!!!

Álit