« Ekkert spes… | Heim | Góðar pælingar… »

Baugsmálið mikla…

Árni | sunnudagur 25.september, 2005

þetta mál er að verða stærra og stærra með hverjum deginum…
ég veit hreinlega ekki hvar það endar…

en víst er að Jónína Ben fær fullt af ljóskuprikum fyrir þau fáu ummæli sem hún hefur látið falla…
mbl var með smá úrdrátt úr viðtali hennar við bylgjuna og þar segir m.a.

Sagðist Jónína hafa sent Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra, tölvupóst um málið en fengið hann endursendan óopnaðan frá Illuga Gunnarssyni, aðstoðarmanni Davíðs, með þeim skilaboðum að forsætisráðherra skipti sér ekki af málum af þessu tagi.

hvernig er hægt að endursenda tölvupóst og sjá að hann hefur ekki verið opnaður???

Össur Skarphéðinsson er svo með fínar pælingar um þögn moggans um málið… engu við það að bæta svosem…

Fl: Annað, Pólitík |

Álit