« Góðar pælingar… | Heim | Öfgar… »
Sigur Rós
Árni | mánudagur 26.september, 2005
Vá hvað Sigur Rós-ar menn eru að koma sterkir inn með nýjasta diskinn sinn Takk…
Það var töluvert liðið síðan ég setti síðast disk með þeim í spilarann þegar ég fékk Takk um daginn… kanski skiljanlegt þar sem ég hafði ofspilað Ágætis byrjun svo heiftarlega á sínum tíma að ég held að Drífa muni seint jafna sig á því
Þessi nýji diskur er við fyrstu hlustanir alveg samkeppnisfær við Ágætis byrjun…
() fannst mér góður, en ekki jafn sterkur og Ágætis byrjun… en með Takk er kominn annað meistaraverk eftir þessa ágætu pilta…
Svo eru þeir líka að fá þessa þrusu dóma um allan heim fyrir þennan disk og tónleikaferðina, ekki slæmt það
########
Í minningunni hjá mér eru 4 hlutir sem skera sig úr varðandi Sigur Rós:
1. fyrst þegar ég heyrði lagið Leit að lífi af plötunni Vonbrigði…
2. þegar ég sá þá fyrst á tónleikum á Gauknum (’97 eða ‘98 man ekki alveg…)
3. Ágætis byrjun í geislaspilaranum mínum á Bergstaðastrætinu (aftur og aftur og aftur……..)
4. tónleikarnir í Fríkirkjunni árið 2000… VÁ!!!
Fl: Lag vikunar, Tónlist |