« Góður leikur í kveld… | Heim | Grænn dagur… »
Hvaða rugl er þetta???
Árni | fimmtudagur 29.september, 2005
Sumt fólk vinnur alla sína ævi til að ná endum saman…
Aðrir fá hlutina gefins…
Við erum að tala um það að hann keypti þetta fyrirtæki á einhvern 1000 kall eða svo þegar múrinn var að falla…
Seldi svo fyrir 3 milljarða dollara til keppinautarins…
Keppinauturinn fór í fangelsi og kaupin gengu til baka (en hann Roman þurfti þó aldrei að endurgreiða peninginn… neinei fékk bara að eiga þá…)
Selur svo ríkinu sama fyrirtæki fyrir 13,1 milljarð dollara…
Við erum að tala um það að hann lagði út 1000 kall fyrir ca. 15 árum og í dag á hann um 1 trilljón (bókstaflega!!!)
Hann gæti með broti af þessum peningum fætt heilu heimsálfurnar í lengri tíma…
En hann mun sennilega nota peningana til að gera fótboltaliðið sitt enn leiðinlegra en það er í dag…
Ég er ekki alveg að skilja þennan heim í dag………………………………………
Fl: Annað |
þriðjudagur 11.október, 2005 klukkan 13:51
E.t.v. gefur hann heiminum milljónir án þess að við vitum það???