« -það er nú meira vesenið að koma tölvunni almennil… | Heim | -ég er oft spurður að því hvernig það er að vera p… »

-mér finnst það ótrúlegt hvað við erum orðin háð g…

Árni | miðvikudagur 30.október, 2002

-mér finnst það ótrúlegt hvað við erum orðin háð gsm símum svona fljótlega eftir að þeir koma á markaðinn… ég man sumarið ‘98 þá var ég ný kominn með símboða, því að ég var aldrei heima, þetta reddaðist alltaf, það var bara hægt að senda mér skilaboð um að verið væri að reyna að ná í mig, og ef mér sýndist þá hringdi ég til baka… skömmu síðar var ég fyrstur vinanna kominn með gsm síma og hef orðið háðari og háðari honum síðan… ekki eru nema um 4 ár síðan… hvernig verður þetta í framtíðinni þegar allir eru komnir svo með háhraðatengingu við netið heima hjá sér??? ætli við verðum eins og kanarnir og sitjum heima hjá okkur og söfnum spiki??? höldum jarðafarir, fæðingar og allt þar á milli “online”, eða náum við að höndla þennan heim þæginda og gerum e-ð sjálf??? getum við hugsað okkur að fara uppí bústað um helgar og slakað á í framtíðinni??? eða verða allir bústaðir komnir með net og gervihnattadisk eftir nokkur ár??? ég vona persónulega að við höldum áfram að njóta þess að lifa á landi þar sem landið sjálft er mun fallegra heldur en þær myndir sem við erum að skoða dagsdaglega á netinu… vonandi förum við ekki að vera það mikið á netinu að það sem við sjáum þar verður raunveruleikinn okkar… heldur vill ég það sem er fyrir utan dyrnar mínar…

Fl: Annað |

Álit