« Grænn dagur… | Heim | Hmm… »

Strætó…

Árni | miðvikudagur 5.október, 2005

Þegar ég var ca. 10 ára og svo til ný fluttur heim frá kanaríkjunum kíkti ég í heimsókn hjá frænda mínum í Hafnarfirðinum…

Þegar klukkan fór svo að verða 6 ákvað ég að það væri kominn tími til að fara heim og bað hann að benda mér á hvar ég gæti tekið strætó heima frá honum…
Veit ekki afhverju mér fannst ekkert mál að skella mér bara í vagninn, því ég hafði aldrei tekið strætó einn áður…
En ég fór semsagt upp í næsta vagn með rétta númerinu og hélt heim á leið í Kópavoginn…

Þegar komið var að stoppustöðinni í Kópavoginum stoppaði vagninn aftur á móti ekki… enginn hafði ýtt á hnappinn, og enginn beið…

Skelfingu lostinn settist ég aftur niður og fór að íhuga hvernig í ósköpunum ég ætti að komast heim núna… Ákvað á endanum að bíða bara og fara hringinn með vagninum og passa mig á því að ýta á hnappinn þegar við værum komnir hringinn aftur inn í Kópavoginn…

Ekki vildi þó betur til en að þetta var lokaferðin hjá þessum vagni þennan daginn, þannig að ferðinni var ekki haldið annan hring, heldur niður á BSÍ, sem var endastöð vagnanna þá…

Ég var svo hræddur að ég þorði ekkert að hreyfa mig… og það var ekki fyrr en einhver vinur bílstjórans sem var að hitta hann á BSÍ benti honum á það að það væri einhver í vagninum að hann tók eftir mér…

Þeir félagarnir voru almennilegir og buðust til að skutla mér inn í Kópavoginn eftir að hafa heyrt söguna mína…

En ég gleymdi aldrei aftur að ýta á bjölluna áður en það kom að stoppustöðinni minni… :)

Fl: Annað, Dagbók |

5 álit á “Strætó…”

  1. Karl Jóhann Sagði:
    fimmtudagur 6.október, 2005 klukkan 13:00

    Hehehe, ég man eftir þessu, það var snjór og pabbi fór með mig niður á stoppistöð á sleða að sækja þig en þú komst ekki ;)

  2. 3. stiga kongurinn Sagði:
    sunnudagur 9.október, 2005 klukkan 23:45

    Eins gott að félagarnir voru ekki vafasamir eða kannski voru þeir það og það útskýrir afhverju þú ert svona skemmdur.

  3. Árni Sagði:
    mánudagur 10.október, 2005 klukkan 09:08

    gat nú verið að þú kæmir með svona komment Leifur minn… ;)

  4. Hildur-amma Sagði:
    þriðjudagur 11.október, 2005 klukkan 13:48

    Mér finnst þetta ofboðslega falleg saga. Vona bara að þú hafir öðlast meiri kjark með aldrinum elskan. Bestu kveðjur

  5. Árni Sagði:
    þriðjudagur 11.október, 2005 klukkan 13:56

    já og nei amma…
    ég hef meira sjálfstraust og kjark nú en fyrir nokkrum árum… en ég get samt oft verið ein taugahrúga og mesta raggeit sem fyrir finnst…

    kanski ég hugsi bara of mikið…
    skrifa heilu bækurnar í kollinum áður en ég geri loks hlutinn… ææææææ!!!!

Álit