« Um næstu helgi… | Heim | Borat og John Stewart… »
Skyldublogg…
Árni | fimmtudagur 19.október, 2006
Mér var hótað… Ég verð víst að blogga…
Ekki vill ég vera tekinn af linkalistum…
Þessi færsla verður reyndar ekki löng, þar sem ég hef ekki tíma til að telja upp allt það sem mig langar að segja, og get ekki valið neitt spes út…
Þess í stað ætla ég í dag að spyrja (þá sem hafa áhuga) hver af þessu þremur hljómsveitum þeim finnst best: At the drive-in, Sparta eða The Mars Volta…
Fyrir þá sem ekki vita þá var At the drive-in hljómsveit sem var búin að túra í um 10 ár og var loksins að “meika” það þegar meðlimirnir hættu að vera sammála um hvernig þeir vildu að næsta plata sveitarinnar myndi hljóma…
Það varð til þess að afróhausarnir tveir hættu í At the drive-in og stofnuðu The Mars Volta, hinir þrír meðlimirnir stofnuðu upp frá því Sparta…
At the drive-in:
Sparta:
The Mars Volta:
fimmtudagur 19.október, 2006 klukkan 19:00
hehe ég sem er tölvunördakona var að uppgvöta youtube.. og I lov it! þetta er magnaður vefur..gaman að þú sért aftur sestur við lyklaborðið
fimmtudagur 19.október, 2006 klukkan 20:10
Þú veist að Google á YouTube núna
fimmtudagur 19.október, 2006 klukkan 20:15
…og já, ég ætla að skjóta á Mars Volta, persónulega er ég At the Drive In maður…en reyndar eiga Sparta sín móment líka, tja…ég held samt Mars Volta
fimmtudagur 19.október, 2006 klukkan 22:06
já youtube er schnilld… og ekki verra að google skuli hafa fjárfest í því…
ég hefði heldur ekkert á móti því að vera annar af gaurunum sem fengu 114 MILLJARÐA fyrir…