« Er það hægt??? | Heim | Jólakveðjan 2005 »
Launamál/kjaramál/almenn réttindi…
Árni | fimmtudagur 22.desember, 2005
Er hægt að réttlæta það að hækka laun “æðstu” ráðamanna landsins enn eina ferðina meðan ekkert er gert í málum þeirra lægst launuðu???
Og hvernig er hægt að vera svo vitlaus að saka fólk um kosningarbrellur þegar það hækkar laun þeirra sem þurfa mest á því að halda og neita svo sjálfir að taka við launahækkunum???
Það þyrfti þá kanski að vera styttra á milli þingkostninga til þess að þessi ríkisstjórn gerði eitthvað í málunum… þeir lofa og lofa í kosningarbaráttunni og geyma svo allt sem er ekki í þágu þeirra sem borguðu í kostningarsjóðinn fram á síðustu daga kjörtímabilsins…
Ef það væri styttra milli kostninga myndu pólitíkusar þá kanski lofa minna og gera meira???
Myndu þeir þá kanski gera eitthvað fyrir þá “lægri” settu í þjóðfélaginu í stað þess að hjálpa bara þeim sem hafa dýpstu vasana að koma gróðanum úr landi???
Eða hvað???
Ég hef ekkert á móti því að fólk verði ríkt og safni nægu inn á bankabókina sína til að geta framfleytt næstu kynslóðum erfingja sinna… en hvernig má það vera í jafn “ríku” landi og Íslandi að það séu ekki til peningar til að halda uppi almennilegu velferðakerfi???
Afhverju er Ísland að verða að svona mikið skrifinsku land??? eru fyrirmyndirnar (kanaríkin o.fl.) svona góðar fyrirmyndir fyrir því hvernig eigi að reka ríkissjóð???
Er það eitthvað til að vera stoltur af að halda ríkissjóði hallalausum, þegar allar eigur hans hafa verið seldar???
Danir eru að koma sér í hóp með Noregi og Sviss sem einu skuldlausu löndin í heiminum… og ekki er íhaldið við völdin þar…
Afhverju tökum við ekki þessi lönd sem fyrirmyndir, í stað kanaríkjana…
Ísland á að vera best í heimi…
Hér er vissulega margt gott… en á meðan ríkisstjórnin “okkar” neitar að bæta lífsgæðin munu þau bara halda áfram að versna…
Rík lönd á borð við ísland eiga að geta verið fyrsta flokks velferðasamfélög…
Það á að vera ókeypis að nota heilbrigðiskerfið og allir ríkisreknir skólar eiga að vera ókeypis… Háskóli Íslands líka…
Danir borga löndum sínum fyrir að fara í Háskóla… og þó svo að fæðingarorlofskerfið á Íslandi sé vissulega gott… þá er það ekki nærði því nógu gott í samanburði við hin Norðurlöndin… þar sem mæður fá allt upp í ár til að eyða með börnunum sínum…
Lengi getur gott batnað… en íhaldið virðist ekki vilja það… allavegna ekki fyrir þá sem eru ekki að hleypa þeim nógu djúpt í vasana sína…
Jæja nóg væl í bili… varð bara að losa aðeins pirringinn……………