Ég, um mig, frá mér, til mín…

Þar sem að hlutirnir hafa breyst ansi mikið seinstu tvö árin hjá mér fannst mér kominn tími til að breyta aðeins efri hluta færslunar :)

Það má vel vera að enginn þarna úti vilji vita neitt um mig… en mér er slétt sama :)
svo finnst mér líka bara gaman að tala um sjálfan mig… umræðuefnin gerast ekki skemmtilegri ;)

Ég heiti Árni Jóhannsson og er fæddur á því herrans ári 1978, uppalinn í Kópavogi, en bý nú í Reykjavík. Páskana 2006 flutti ég aftur í Kópavoginn eftir að hafa búið í RVK í nokkur ár.

Ég er trúlofaður giftur henni Drífu Bjarnadóttur, en við erum svo lukkuleg að eiga tvær yndislegastu stelpurnar í þessu heimi, þriggja fimm ára stúlku sem hlaut nafnið Perla Rós og eina nýfædda tveggja ára stúlku sem heitir Urður Ósk. Nýlega bættist svo fyrsti strákurinn í hópinn og hlaut hann nafnið Arnaldur :D

Í dag starfa ég á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Þar er ég titlaður Skrifstofumaður og sé um tölvukerfið ásamt því að aðstoða við allt milli himins og jarðar (bókhald, laun, húsvörslu o.s.frv…)

Ég starfa í dag sem kerfisstjóri/tölvari/tölvunörd hjá RÚV. Ég sé semsagt um tölvukerfi Ríkisútvarpsins… og nei… ég get ekki hjálpað ykkur að fella niður afnotagjöldin :)

Nú nýlega skráði ég mig á námskeið hjá ntv.is og verð því að tölvunördast fyrri part vetrar, en ætla svo í fjarnám frá Bifröst eftir áramót og klára það sem ég byrjaði á Háksóla Íslands fyrir 4 árum síðan…
Seinna meir hygg ég á mastersnám í því landi sem vill vera svo gott að taka við henni Drífu minni í dýralæknanám :)

Þessi liður hefur heldur betur tekið breytingum…..
Ég kláraði MCSA námið… og ákvað í kjölfar þess að fara að vinna við áhugamálið… þe. tölvur… mun kanski fara aftur í skóla einhvern tíman… en ekki í bráð…
Drífa er búin með B.sc. í Líffræði frá HÍ og er núna komin í Mastersnám í Fiskeldi við Hóla í Hjaltadal

Það mun sennilega einhverntíman bætast við smá um æsku mína hér síðar… en ég nenni ekki að hugsa núna, það er föstudagur og ég er þreyttur……… :)

Í dag er þriðjudagur… og því tilvalið að rifja upp æskuna smá :D

Fyrsta ár ævi minnar bjó ég í Hafnarfirði, í götu sem heitir Sléttahraun…
Þaðan flutti ég rétt rúmlega eins árs gamall og einum bróður ríkari…
Foreldrar mínir ákváðu að Kópavogurinn væri málið… og fundu stórt og fallegt hús í Löngubrekkunni (þar sem þau búa enn…)

Fyrsti leikskólinn minn hét Kópasteinn… og í honum eyddi ég 3 árum… eða alveg þangað til foreldrar mínir ákváðu að kanaríkinn væru málið…

Fyrsti viðkomustaðurinn var Shoreline, sem er í raun úthverfi Seattle, þar sem pabbi fór í Shoreline Community College í eitt ár… og ég hóf skólagönguna mína í Highland Terrace grunnskólanum…

Þaðan lá leiðinn inn í miðja Seattle þar sem ég skipti um skóla og fór í Coe elementery school meðan foreldrar mínir skelltu sér í Seattle Pacific Univercity, eða SPU eins og hann heitir svo fallega…

1987 þegar ég var rétt að verða 9 ára ákváðu foreldrar mínir svo að útskrifast og flytja aftur heim á skerið…
Þá hóf ég nám í 3.ja bekk í Kópavogsskóla, þaðan sem ég lauk síðan grunnskóla-/sæmræmdum prófum árið 1994…

Að grunnskóla loknum hélt ég í hinn sögufræga Verslunnarskóla Íslands, en sökum þess að ég skemmti mér ekki alveg nógu vel það árið ákvað ég að skipta um skóla eftir fyrsta árið og fara aftur heim í Kópavoginn í MK

Ég gæti skrifað heila nýja síðu um árin í MK… en ég sleppi því í bili :)

Síðan ég lauk menntaskólanum fyrir næstum 8 árum síðan hef ég gert alveg fullt af skemmtilegum hlutum…
Unnið sem þjónn, barþjónn, vaktstjóri og fleirra á kaffihúsum og skemmtistöðum… verið ruslakall, sundlaugavörður, næturvörður á hóteli, bókari, launafulltrúi, húsvörður… og margt fleirra…

Jæja ævi mín er nú ekki orðin lengri en þetta… ég á greinilega nóg eftir :D

ich bin ein berliner!!!