Time of your life…
miðvikudagur 10.október, 2007
Frábær texti sem minnir mann á það að vera ekki að velt sér of mikið upp úr því afhverju maður lendir í hinu og þessu - slæmu jafnt sem góðu - heldur að taka öllu sem prófsteini og reyna að læra sem mest af því…
Another turning point, a fork stuck in the road
Time grabs you by the wrist, directs you where to go
So make the best of this test, and don’t ask why
It’s not a question, but a lesson learned in timeIt’s something unpredictable, but in the end it’s right
I hope you had the time of your lifeSo take the photographs, and still frames in your mind
Hang it on a shelf in good health and good time
Tattoos of memories and dead skin on trial
For what it’s worth it was worth all the whileIt’s something unpredictable, but in the end it’s right
I hope you had the time of your life
Villi Vill…
þriðjudagur 9.október, 2007
Ég veit að það er orðið langt síðan ég skrifaði eitthvað á þessa síðu… en ég varð að henda þessu inn hérna…
Grein sem ég var að lesa á Vísi.is
Ég vissi alltaf að þessi maður yrði vanhæfur… þrátt fyrir að amma mín hafi reynt að sannfræra mig um annað…
Ógöngur Vilhjálms borgarstjóra
Gamli góði Villi hefur ekki verið nógu var um sig.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hefur ekki átt sjö dagana sæla í embætti. Nú eru um 500 dagar liðnir frá síðustu sveitastjórnarkosningum og hefur hann staðið að fjölmörgum umdeildum verkefnum. Á meðal þeirra er að gera útigangsmenn að nágrönnum leikskólabarna og gefa fjárhættuspilafyrirtæki 20 milljónir króna á silfurfati.
Nágranninn Villi Vill
Vilhjálmur úthýsti Háspennu, sem rekur fjárhættuspilakassa, úr Mjóddinni á þeim forsendum að hann vildi ekki að fyrirtækið væri með starfsemi í fjölskylduhverfi. Vilhjálmur býr skammt frá Mjóddinni. Hann lét borgina því kaupa húsnæðið sem fasteignafélag tengt Háspennu átti fyrir 92 miljónir króna. Til viðbótar fékk Háspenna afhenta glæsilega einbýlishúsalóð við Starhaga sem Vilhjálmur sagði vera 30 milljóna króna virði. Kjartan Magnússon, samherji Vilhjálms í borgarstjórn, gagnrýndi þessar ákvarðanir borgarstjóra.
Reiknikúnstnerinn Villi Vill
Eigendur Háspennu græddu milljónir á kostnað borgarbúa.
Háspenna seldi lóðina sem borgin lét af hendi fyrir 50 milljónir króna einungis örfáum mánuðum seinna. Vilhjálmur misreiknaði sig því um litlar 20 milljónir á kostnað borgarbúa.
Upplýsingafulltrúinn Villi Vill
Vilhjálmur ákvað að staðsetja heimili fyrir útigangsmenn á Njálsgötu. Langflestir íbúar í götunni fengu fyrstu fréttir um málið þegar Fréttablaðið skýrði frá því. Fjölmargar barnafjölskyldur eru í götunni og þar er starfræktur leikskóli.
Forvarnarfulltrúinn Villi Vill
Borgin og lögreglan hafa staðið saman að bættri menningu í Reykjavíkurborg.
Lögreglan og Reykjavíkurborg ákváðu að skera upp herör gegn ómenningu í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan með því að fjölga mönnum á vakt um helgar. Vilhjálmur með því að stinga upp á að Vínbúðin í Austurstræti hætti að selja kaldan bjór í stykkjatali.
Hinn staðfasti Villi VillÞegar Sjálfstæðisflokkurinn var í minnihluta í borgarstjórn gagnrýndu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins Alfreð Þorsteinsson stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur fyrir áhættufjárfestingar á vegum fyrirtækisins, meðal annars með stofnun Línu.net. Eitt af fyrstu verkefnum Sjálfstæðisflokksins í meirihluta var að stofna fyrirtækið Reykjavík Energy Invest, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, sem hefur það að markmiði að stunda áhættufjárfestingar á sviði orkuiðnaðar.
Reykásinn Villi VillDagar Hauks Leóssonar, sem stjórnarformanns Orkuveitunnar, verða senn taldir.
Þegar samruni Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy hafði siglt í öngstræti, meðal annars vegna himinhárra kaupréttasamninga til handa völdum gæðingum, leysti Vilhjálmur málið með því að reka vin sinn, Hauk Leósson úr embætti stjórnarformanns Orkuveitunnar. Vilhjálmur stóð að skipun Hauks Leóssonar vegna þess að hann vildi fá fagmann að stjórn fyrirtækisins. Haukur var hins vegar rekinn til að hægt væri að koma að pólitíkus í embættið.
Fjölskyldumaðurinn Villi Vill
Vilhjálmur seldi sex daga gömlu fyrirtæki bróður síns, Svans Vilhjálmssonar, eftirsótta lóð borgarinnar við Fiskislóð í Reykjavík á spottprís í maí á þessu ári. Þá réð hann líka frænda sinn, Vilhjálm Skúlason, í góða stöðu hjá Reykjavík Energy Invest. Vilhjálmur starfaði áður sem verslunarstjóri hjá Tékk - Kristal.
Hinar mörgu hliðar Villa Vill
Borgin samdi við hjúkrunarheimilið Eir um byggingu þjónustuíbúða og félagsmiðstöðvar fyrir aldraða án þess að bjóða verkið út. Minnihlutinn í borgarstjórn vildi formlegt útboð. Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri er stjórnarformaður í Eir.
Fl: Pólitík | Ekkert álit »
Jæja…
sunnudagur 29.júlí, 2007
Sveitin var góð… en nú er maður kominn aftur heim og bara rétt rúm vika í að alvaran taki við á ný……………………
Plana að njóta þess að vera með famelíunni eins mikið og ég get… og spila fullt af golfi þessa vikuna……
Nýtt dót…
mánudagur 23.júlí, 2007
Ég fékk nýtt dót um daginn

Fyrir vikið hef ég tekið fullt af myndum síðustu vikurnar… og mun koma þeim á netið við tækifæri
——————————–
Svo langar mig að óska litla brósa til lukku með æðislegt brúðkaup á föstudaginn laugardaginn (ég er alltaf janf dagavilltur…) ![]()
Fl: Dagbók, Fjölskyldan | 2 álit »
Spurning dagsins…
mánudagur 16.júlí, 2007
Hvernig er best að enda sumarfríið???
ef einhver giskaði á matareitrun… þá hafði sá hinn sami rétt fyrir sér…
ég er samt ekki búinn að koma mér niður í þá þyngd sem ég ætlaði að vera í þegar ég færi aftur í vinnu eftir verslunarmannahelgi… en ég hef enn nokkra daga í það…
meira um það síðar…
Við erum allavegna komin í bæinn… fyrr en áætlað hafði verið… og okkur til mikillar ánægju (eða ekki) er veðrið sem við vorum að leita að í sveitinni búið að vera hér í bænum allan tímann………….
gott í bili…
Fl: Daglegt líf, Fjölskyldan | 4 álit »
Nýjar myndir…
sunnudagur 8.júlí, 2007
Hlóð myndunum loksins inn í tölvuna og útkoman er þessi

Fl: Fjölskyldan | 2 álit »
Punktablogg…
fimmtudagur 5.júlí, 2007
Stígur félagi er farinn að koma með svona fín punktablogg öðru hvoru… fín leið til að blogga þegar þú hefur ekki mikið að segja um neinn sérstakan hlut, en villt samt koma einhverju á síðuna…
Við erum stödd í Víkinni þessa vikuna…
Perla Rós er búin að vera á leikjanámskeiði, sem gefur Urði Ósk meiri tíma til að leika við foreldra sína meðan Arnaldur sefur (sem er orðinn ansi stór hluti dagsins :D)
Ég er búinn að lækka forgjöfina mínu um 3… og svo tókst mér að ná mér í einhverja pest… en hún virðist þó sem betur fer aðeins vera sólarhringspest, sem ég náði að mestu að sofa af mér (svaf í 14 tíma í nótt……………)
Á sunnudaginn munum við svo kíkja austur á Hérað og slaka á í bústað með foreldrum mínum…
Ég skal svo lofa að vera duglegri að hlaða inn myndum… búinn að taka nokkrar… en bara ekki komið þeim inn í tölvuna…
Svo verður maður að minnast á kaup sumarsins, hingað til…
Fernando Torres er mættur á Anfield

Fl: Dagbók, Fjölskyldan, Liverpool FC | Ekkert álit »
Bretar hafa hæfileika…
mánudagur 18.júní, 2007
Miðað við þessi tvö þá hafa Bretar allavegna meiri hæfileika en kanar…
Þessi feimni þybbni símasölumaður, með þessa rödd……… vá…
Svo er það Connie… 6 ára stelpa sem syngur betur en flestir fullorðnir… hún er ári eldri en Perla Rós og það kemur ekki fölsk nóta út úr henni í þessu lagi……… magnað…
Fl: Annað, Tónlist | Ekkert álit »
Nýjar myndir…
laugardagur 9.júní, 2007
Jæja, þá er maður búinn að taka saman nokkrar myndir af fyrstu dögum Arnalds… ![]()
Smellið hér til að sjá…

Fl: Fjölskyldan | 4 álit »
Arnaldur Árnason
miðvikudagur 6.júní, 2007
Fæddist klukkan 10:28 í morgun og var 52cm og 15 merkur

Öllum heilsast vel ![]()
Fl: Fjölskyldan | 4 álit »
Vikan…
fimmtudagur 24.maí, 2007
Jæja… þá er þessi viðburðaríkasta vika ársins loks liðinn… og ég get farið að anda aftur (og Drífa að unga út
)
- Urður Ósk varð 2.ja 16.maí
- Það var haldið Prinsessupartý 18.maí fyrir Perlu Rós (stelpunum úr leikskólanum boðið í partý), fyndið að sjá 9 4-5 ára stelpur hlaupa um húsið og svo Urði Ósk alltaf nokkrum skrefum á eftir að elta
- 19.maí var svo haldið fjölskylduafmæli fyrir stúlkurnar… auk þess sem að ég og Drífa vorum að halda upp á 8 (já ég endurtek ÁTTA) ára afmælið okkar
- í gær 23.maí varð svo Perla Rós 5 ára… stóra stelpan okkar
því miður endaði dagurinn ekki eins vel fyrir mig og ég hafði óskað… Liverpool tapaði……….. en það gerist víst líka
Nú styttist bara í það að ég fari með Drífu upp á fæðingardeild og taki á móti syninum… Pabbi vill að við bíðum til 1.júní svo að hann geti fengið drenginn í afmælisgjöf
en það verður bara að koma í ljós hvort að drengurinn geti beðið svo “lengi” ![]()
Læt vita um leið og eitthvað gerist (eða allavegna við fyrsta tækifærið
)
Fl: Dagbók, Fjölskyldan, Liverpool FC | 5 álit »
YNWA…
þriðjudagur 22.maí, 2007

Fl: Liverpool FC | 2 álit »
Kjósum rétt…
laugardagur 12.maí, 2007
Ég hef aldrei verið góður í að koma því sem ég er að hugsa niður á blað (eða tölvuskjá) þannig að ég ætla að leyfa mér að “ræna” orðum hans Einars Arnar:
Ég er jafnaðarmaður.Ég trúi því að allir eigi að fá jöfn tækifæri til að mennta sig, óháð efnahag. Ég trúi því að konur og karlar eigi að sömu laun fyrir sömu vinnu. Ég tel það ekki vera hlutverk ríkissins að selja orku á gjafverði til stórfyrirtækja. Ég trúi því heldur ekki að okkar kynslóð hafi einhvern rétt til þess að nýta alla orku landsins í sína þágu. Það er stórkostleg frekja.
Ég trúi því að ríkið eigi ekki að skapa störfin, né að þingmenn eigi að koma með tillögur að nýsköpun, því ég er sannfærður um að í réttum skilyrðum muni almenningur sjá um nýsköpunina. Ríkið á einungis að skapa hér tækifæri til þess að atvinnulífið og þá sérstaklega minni fyrirtæki geti blómstrað. Það er erfitt í efnahagskerfi þar sem ríkja miklar gengissveiflur og okurvextir einsog á Íslandi í dag.
Ég vil að Íslendingar sækji um aðild að ESB og taki upp evru sem gjaldmiðil. Krónan er ónýtur gjaldmiðill, sem er haldið uppi aðallega útaf tilfinningarökum. Gengissveiflur og vaxtaokur er fyrirtækjum og einstaklingum mikill baggi. Ég vil að Íslendingar skilgreini sín samningsmarkmið við ESB, sæki um aðild og leggi svo aðildarumsóknina í dóm kjósenda. Allar aðrar Norðurlandaþjóðir hafa fengið slíkt tækifæri nema við. Það er ósanngjarnt.
Ég trúi því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sé líklegust til að setja þau mál í forgang, sem ég tel mikilvægust. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt að hann er ófær um að viðhalda stöðugleika í íslensku þjóðfélagi. Flokkurinn sem auglýsti sig eitt sinn undir orðinu “stöðugleiki” er nú sami flokkur og stjórnar í landi þar sem vaxtaokrið er með eindæmum, verðbólgan yfir takmörkum og viðskiptahallinn gríðarlegur.
Í dag kaus ég Samfylkinguna… og er stoltur af því…
Vatn á Mars…
föstudagur 11.maí, 2007
já þið lásuð rétt… það hefur fundist VATN Á MARS!!!!
Lesa áfram »
Fl: Húmor | Ekkert álit »
YNWA!!!!!!
miðvikudagur 2.maí, 2007
Hvað getur maður sagt???
Athens here we come ![]()

Fl: Liverpool FC | 2 álit »